Það vakti mikla athygli í leik Qarabag og Newcastle United í Meistaradeildinni þegar Anthony Gordon steig á punktinn með þrennu á bakinu, en hann reifst við Kieran Trippier um vítaspyrnuna sem fannst rétt að gefa öðrum leikmanni tækifæri til að skora.
Gordon skoraði þrennu í fyrri hálfleik gegn Qarabag, þar af eitt úr víti áður en hann fiskaði síðan aðra vítaspyrnu.
Englendingurinn var ekki saddur og fór aftur á punktinn og gerði þar með sitt tíunda Meistaradeildarmark á tímabilinu.
Trippier reifst við Gordon um að leyfa Nick Woltemade, sem hefur ekki alveg náð sér á flug í Meistaradeildinni og aðeins með eitt mark, að taka spyrnuna, en Gordon var sama og tók spyrnuna sjálfur.
„Ég held að við getum tekið margt jákvætt úr þessu augnabliki. Það er alltaf gerður úlfaldi úr mýflugu í svona málum, en bara frábært að Anthony sé svona staðráðinn í að vilja skora á hverju einasta augnabliki.“
„Það er ekkert vandamál á milli okkar eða Kieran (Trippier). Hann er sannur leiðtogi sem kveikir neistann í öðrum á öllum augnablikum.“
„Það góða við þetta er að hann skoraði úr vítaspyrnunni, sem er líka jákvætt. Það sýnir að leikmönnunum er ekki sama og vilja allir gera vel,“ sagði Howe um atvikið.
Gordon og Trippier gerðu báðir lítið úr atvikinu eftir leik. Hlutir eru sagðir í hita leiksins en að þeir séu nánir vinir.
Leiknum lauk með 6-1 sigri Newcastle sem er komið með annan fótinn í 16-liða úrslit keppninnar.
???? ????????????????????????????????: What on EARTH was going on here between Trippier and Anthony Gordon!
— The Touchline | ???? (@TouchlineX) February 18, 2026
They are leading 5-0 in a Champions League game and they almost started to fight at halftime! pic.twitter.com/0EDQhxRnb5
Athugasemdir



