Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fös 20. febrúar 2026 15:25
Brynjar Ingi Erluson
Kom ekki til Tottenham til að njóta - „Mjög sjaldgæf staða“
Igor Tudor
Igor Tudor
Mynd: EPA
Igor Tudor, nýr stjóri Tottenham, sat sinn fyrsta fréttamannafund í dag en hann mun stýra sínum fyrsta leik þegar liðið mætir Arsenal í Norður-Lundúnaslag á sunnudag. Króatinn er mættur til að vinna, ekki til að njóta.

Thomas Frank var rekinn frá Tottenham rúmu hálfu ári eftir að hafa tekið við liðinu.

Tottenham er komið í fallbaráttu og var Tudor fenginn til þess að rétta úr kútnum.

Tudor er spenntur en á sama einbeittur á að koma liðinu í gang.

„Ég er ekki kominn hingað til að njóta, heldur til að vinna. Maður nýtur fyrsta augnabliksins og síðan hefst vinnan. Þetta er frábært félag og er ég einbeittur á að gera réttu hlutina,“ sagði Tudor á fyrsta fréttamannafundinum.

„Ég veit það ekki. Ég vinn bara mína vinnu og geri svo sem ekkert sérstakt. Ég geri það sem ég tel mikilvægast. Þú þarft að leysa vandamálin og þau má jafnvel finna hjá bestu félögunum,“ sagði Tudor.

Margir leikmenn eru meiddir í liði Tottenham og segist Tudor stöðuna mjög svo sérstaka.

„Solanke er að glíma við eitthvað í hálsi, en æfði samt. Síðan koma nokkrir í næstu viku.“

„Þetta er mjög sjaldgæf staða. Við erum með tíu meidda og æfðum bara með þrettán leikmenn.“

„Áskorunin að ná árangri er enn stærri í svona stöðu. Fyrsta markmið mitt er að við verðum lið í orðsins fyllstu merkingu þannig liðið þjáist þegar það þurfi að þjást, sýni baráttu, hleypur og hefur rétta hugarfarið. Byrjunin snýst alltaf um hugarfar.“


Hann mun nota leikkerfi sem hentar leikmannahópnum enda sé hugmyndin að fá liðið til að aðlagast sem fyrst til þess að ná í úrslit.

„Þetta snýst ekki um leikkerfi. Það er mikilvægt að breytast í lið eða hóp sem mun hugsa um náungann. Það eru grunngildi mín.“

„Eftir það fær maður að sjá gæðin og fyrir mér er þetta lið með gæði og lappir sem geta hlaupið. Það eru möguleikar hérna,“
sagði hann í lokin.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner