Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 17:41
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Glæsilegur endurkomusigur - Víkingur lagði Val
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: ÍBV
Þróttur tók á móti FH í hörkuslag í A-deild Lengjubikars kvenna í dag og náðu Hafnfirðingar tveggja marka forystu snemma leiks.

Birna Kristín Björnsdóttir og Hrönn Haraldsdóttir skoruðu mörkin og leiddi FH í leikhlé.

Heimakonur gerðu tvöfalda skiptingu í leikhlé og áfrekuðu frábæra endurkomu í síðari hálfleik þar sem Björg Gunnlaugsdóttir og Kayla Marie Rollins jöfnuðu metin með sitthvoru markinu áður en Þórdís Nanna Ágústsdóttir gerði sigurmark á lokamínútunum.

Niðurstaðan varð því 3-2 eftir magnaða endurkomu í síðari hálfleik. Þróttur er með sex stig eftir tvær umferðir og FH með þrjú stig.

Víkingur mætti þá Val í spennandi viðureign í Víkinni og skoraði Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, fyrrum leikmaður Vals, eina mark leiksins í sigri Víkings.

Víkingur er á toppi riðils 2 í efstu deild með sex stig eftir tvær umferðir og markatöluna 8-0. Valskonur eiga einnig sex stig en hafa spilað einum leik meira.

Að lokum skildu Fram og ÍBV jöfn í Úlfarsárdal. Una Rós Unnarsdóttir tók forystuna fyrir fram áður en Milena Patru jafnaði fyrir Eyjakonur svo lokatölur urðu 1-1. Bæði lið eiga eitt stig eftir tvær umferðir.

Þróttur R. 3 - 2 FH
0-1 Birna Kristín Björnsdóttir ('10)
0-2 Hrönn Haraldsdóttir ('16)
1-2 Björg Gunnlaugsdóttir ('59)
2-2 Kayla Marie Rollins ('69)
3-2 Þórdís Nanna Ágústsdóttir ('87)

Víkingur R. 1 - 0 Valur
1-0 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('73)

Fram 1 - 1 ÍBV
1-0 Una Rós Unnarsdóttir ('60)
1-1 Milena Mihaela Patru ('79)
Athugasemdir
banner