Fram 2 - 3 Stjarnan
1-0 Róbert Hauksson ('14 )
1-1 Andri Rúnar Bjarnason ('29, víti )
1-2 Haukur Brink ('49 )
2-2 Kennie Chopart ('69 )
2-3 Samúel Kári Friðjónsson ('77 )
1-0 Róbert Hauksson ('14 )
1-1 Andri Rúnar Bjarnason ('29, víti )
1-2 Haukur Brink ('49 )
2-2 Kennie Chopart ('69 )
2-3 Samúel Kári Friðjónsson ('77 )
Samúel Kári Friðjónsson tryggði Stjörnumönnum öll stigin í 3-2 sigri á Fram í A-riðli A-deildar Lengjubikarsins á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í dag.
Róbert Hauksson braut ísinn á 14. mínútu leiksins en Andri Rúnar Bjarnason jafnaði fyrir Stjörnuna úr vítaspyrnu stundarfjórðungi síðar.
Haukur Brink kom Stjörnunni í forystu snemma í síðari hálfleiknum áður en Kennie Chopart svaraði rúmum tuttugu mínútum fyrir leikslok.
Samúel Kári skoraði sigurmark gestanna á 77. mínútu og tryggði þeim þriðja sigurinn í röð.
Stjarnan er á toppnum með níu stig eða fullt hús stiga á meðan Fram er í 4. sæti með þrjú stig eftir þrjá leiki.
Stöðutaflan
Ísland
Lengjubikar karla
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Athugasemdir


