Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 11:11
Brynjar Ingi Erluson
Skýtur til baka á stuðningsmenn Palace - „Sýnið auðmýkt“
Oliver Glasner
Oliver Glasner
Mynd: EPA
Austurríski stjórinn Oliver Glasner er ekki í þessum bransa til að eignast vini, en hann hefur svarað þeim stuðningsmönnum sem kalla eftir brottrekstri hans.

Hópur stuðningsmanna söng til Glasner eftir 1-1 jafnteflið gegn Zrinjski Mostar í umspili Sambandsdeildarinnar í Bosníu á dögunum.

Eðlilega eru einhverjir stuðningsmenn orðnir pirraðir á stöðunni, en Palace hefur aðeins unnið einn leik af síðustu fimmtán í öllum keppnum.

Glasner, sem vann bikarmeistaratitilinn með Palace á síðasta ári, lækkaði rostann í stuðningsmönnum á fréttamannafundi.

„Þeir geta sagt og sungið um það sem þeir vilja. Ég veit hvað ég er að gera,“ sagði Glasner.

„Ég myndi segja að það mikilvægasta sé að halda áfram að sýna auðmýkt. Það sama á við um stuðningsmennina.“

„Sýnið auðmýkt og aldrei gleyma hvaðan þið komið. Ég held að þessir fáu stuðningsmenn sem eru svona gagnrýnir varðandi stöðuna hafi tapað auðmýktinni,“

„Þér er vanalega refsað í lífinu ef þú gleymir uppruna þínum,“
sagði Glasner.
Athugasemdir
banner
banner