RB Leipzig 2 - 2 Dortmund
1-0 Christoph Baumgartner ('20 )
2-0 Christoph Baumgartner ('39 )
2-1 Romulo ('50 , sjálfsmark)
2-2 Fabio Silva ('95 )
1-0 Christoph Baumgartner ('20 )
2-0 Christoph Baumgartner ('39 )
2-1 Romulo ('50 , sjálfsmark)
2-2 Fabio Silva ('95 )
RB Leipzig tók á móti Borussia Dortmund í stórleik dagsins í þýska boltanum eftir að Þýskalandsmeistarar FC Bayern unnu gegn Eintracht Frankfurt í fjörugum fimm marka leik fyrr í dag.
Leipzig skapaði sér bestu færin í fyrri hálfleik þar sem Christoph Baumgartner skoraði tvennu af stuttu færi. Fyrra markið skoraði hann eftir magnaðan undirbúning frá táningnum eftirsótta Yan Diomande og seinna markið gerði hann eftir lága fyrirgjöf frá bakverðinum David Raum.
Dortmund byrjaði seinni hálfleikinn á því að minnka muninn eftir hornspyrnu þegar Romulo Cardoso varð fyrir því óláni að skalla boltann í eigið net.
Dortmund var sterkara liðið og skapaði góð færi til að jafna en boltinn virtist ekki ætla að rata í netið, ekki fyrr en seint í uppbótartíma þegar Fábio Silva, fyrrum leikmaður Wolves, skoraði eftir misheppnaða hápressu hjá Leipzig.
Gestirnir spiluðu sig vel úr pressunni og náði Karim Adeyemi að koma boltanum á Silva sem skoraði úr dauðafærinu á 95. mínútu.
Dortmund hélt áfram að sækja eftir jöfnunarmarkið og komst Julian Brandt nálægt því að stela sigrinum, en náði ekki að setja boltann framhjá Maarten Vandevoordt úr þröngu færi. Lokatölur urðu því 2-2.
Dortmund er núna átta stigum á eftir toppliði Bayern eftir að hafa misstigið sig í Leipzig.
Leipzig er áfram í harðri baráttu um meistaradeildarsæti með 41 stig eftir 23 umferðir.
Athugasemdir

