Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
Wöhler fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
   lau 22. júní 2013 18:50
Brynjar Ingi Erluson
Beggi Ólafs: Fáránlegt ef Gústi hendir mér ekki í búrið
Bergsveinn varði meistaralega síðustu mínúturnar
Bergsveinn varði meistaralega síðustu mínúturnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bergsveinn Ólafsson, varnarmaður Fjölnis í fyrstu deild karla, var allt í öllu í dag, en hann skoraði mark heimamanna og hélt þá hreinu er hann fór í markið síðustu mínútur leiksins í 2-1 sigri á Völsungi.

Bergsveinn þurfti að taka á sig að fara í markið síðustu fimmtán mínútur leiksins, en Steinar Örn Gunnarsson fór þá meiddur af velli eftir samstuð við Péter Odrobéna og þá var Fjölnisliðið búið með skiptingarnar.

,,Hreint lak og að setja hann gerist ekki oft hjá mér. Ég er mjög ánægður með þetta og hef alltaf dreymt um að fara í markið í leik og það kom ekki til greina að einhver annar væri að fara í markið en ég, það sást líka á vörslunum," sagði Bergsveinn.

,,Þessi fyrri hálfleikur var bara stál í stál og bæði lið að berjast. Það vantaði tíu eða tuttugu prósent hjá okkur í þetta, en seinni hálfleikur hafði upp á aðeins meiri skemmtun að bjóða, ef fyrri hálfleikur hefði verið eins og seinni hálfleikur þá hefði ég bara endurgreitt fólkinu."

,,Það var ekki séns. Ég vissi ekki að við vorum búnir með skiptingarnar, en Gunni talaði við mig og ég ætlaði allan tímann í markið og það var bara gott að ég gerði það. Ég gerði þetta einu sinni í B-liði í 3. flokk, en það voru bara tvær mínútur og frekar easy. Þetta reyndi smá á mig en maður var bara silkislakur þarna."

,,Ég var alltaf á battavellinum í gamla daga þegar við vorum að spila og ég var alltaf í markinu og mér fannst það skemmtilegast, lokaði oft rammanum og það hjálpaði mér í dag greinilega."

,,Ég hlýt að vera fyrsti maður inn í búrið og fáránlegt ef Gústi hendir mér ekki í búrið eftir þessa frammistöðu,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner