FIFA hefur engar áætlanir um að láta Ítalíu fá sæti Írans á HM í sumar. Donald Trump forseti Bandaríkjanna er sagður hafa lagt þessi skipti til en það hefur verið óvissa um þátttöku íranska landsliðsins vegna stríðs Írans við Bandaríkin og Ísrael.
Paolo Zampolli, sendifulltrúi Trump, segir að þar sem Ítalía á fjóra heimsmeistaratitla þá geri landið tilkall til að réttlæta það að fá sæti á mótinu.
FIFA vill ekki svara hugmyndum Zampolli og Trump opinberlega en vitnar í ummæli Gianni Infantino, forseta FIFA, sem sagði á dögunum að íranska landsliðið myndi taka þátt á HM.

Financial Times segir að þessi hugmynd Trump að láta Ítalíu fá sæti sé til að reyna að bæta samband Bandaríkjanna og Ítalíu eftir að Giorgia Meloni forsætisráðherra Ítalíu gagnrýndi Trump vegna ummæla um páfann.
Ítalíu hefur mistekist að komast á HM síðustu þrjú mót en liðið tapaði fyrir Bosníu í umspili í síðasta mánuði.
HM hefst 11. júní en Íran er í riðli með Nýja-Sjálandi, Belgíu og Egyptalandi. Mótið fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.