City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   þri 24. febrúar 2026 14:14
Elvar Geir Magnússon
Markverði Juventus hótað af bálreiðum stuðningsmönnum
Michele Di Gregorio, markvörður Juventus, hefur lokað fyrir ummæli á samfélagsmiðlum.
Michele Di Gregorio, markvörður Juventus, hefur lokað fyrir ummæli á samfélagsmiðlum.
Mynd: EPA
Michele Di Gregorio, markvörður Juventus, hefur lokað fyrir ummæli á samfélagsmiðlum eftir hótanir sem beindust að honum og hans fjölskyldu.

Gengi Juventus hefur verið mjög dapurt og liðið tapað fjórum síðustu leikjum. Di Gregorio hefur fengið sinn skammt af gagnrýni fyrir lélega frammistöðu.

Juventus féll úr leik í ítalska bikarnum með 3-0 tapi gegn Atalanta, tapaði 3-2 gegn Inter í Derby d’Italia, fékk 5-2 skell gegn Galatasaray í Meistaradeildinni og tapaði svo 2-0 fyrir Como í síðasta deildarleik.

Di Gregorio hefur fengið mörg mörk á sig á tímabilinu sem hann hefði átt að koma í veg fyrir; þar á meðal gegn Inter, Borussia Dortmund, Sporting, Fiorentina, Lazio, Galatasaray og Como.

Hann hefur verið kallaður ýmsum illum nöfnum á samfélagsmiðlum og meðal annars verið sakaður um að halda með Inter þar sem hann var í unglingaliðum félagsins.

Juventus leikur seinni leik sinn gegn Galatasaray í umspili Meistaradeildarinnar í Tórínó annað kvöld.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 22 2 5 65 23 +42 68
2 Milan 29 17 9 3 44 21 +23 60
3 Napoli 29 18 5 6 45 30 +15 59
4 Como 29 15 9 5 48 22 +26 54
5 Juventus 29 15 8 6 51 28 +23 53
6 Roma 29 16 3 10 39 23 +16 51
7 Atalanta 29 12 11 6 40 27 +13 47
8 Bologna 29 12 6 11 38 34 +4 42
9 Lazio 29 10 10 9 29 28 +1 40
10 Sassuolo 29 11 5 13 35 39 -4 38
11 Udinese 29 10 6 13 33 42 -9 36
12 Parma 29 8 10 11 21 36 -15 34
13 Genoa 29 8 9 12 36 40 -4 33
14 Torino 29 9 6 14 32 50 -18 33
15 Cagliari 29 7 9 13 31 41 -10 30
16 Lecce 29 7 6 16 21 39 -18 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Pisa 29 2 12 15 23 49 -26 18
20 Verona 29 3 9 17 22 51 -29 18
Athugasemdir
banner