„Það var margt sem fór úrskeiðis í dag og það er erfitt að benda á eitthvað eitt þegar við spilum hvorki vel sóknar né varnarlega," sagði Alfreð Finnbogason, framherji íslenska landsliðsins, við Fótbolta.net eftir 2-1 tapið gegn Dönum í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 2 Danmörk
Danir skoruðu sín mörk í upphafi síðari hálfleiks. Á milli markanna átti Birkir Bjarnason sem Kasper Schmeichel varði út í teiginn. Alfreð var að gera sig líklegan til að ná frákastinu og skora þegar hann rann á vellinum.
„Þetta var í raun og veru tap-in en ég renn í eitt af fáum skiptum í þessum leik. Það er lítið við því að gera en mjög svekkjandi fyrir mig, ég var búinn að sjá boltann í netinu. Það var ennþá meira svekkjandi að þeir fara upp og skora í næstu sókn," sagði Alfreð sem kennir ekki skóbúnaðinum um að hafa runnið.
„Ég var vel skóaður. Skrúfurnar voru klárar og allt. Völlurinn var langt frá því að vera góður, sérstaklega í teignum."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























