Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
   lau 24. júní 2023 17:30
Stefán Marteinn Ólafsson
Láki: Gríðarlega sáttur við það hvernig við brugðumst við
Lengjudeildin
Þorlákur Már Árnason þjáflari Þórs Ak
Þorlákur Már Árnason þjáflari Þórs Ak
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór Akureyri gerðu sér ferð suður með sjó þegar 8.umferð Lengjudeildarinnar hélt áfram göngu sinni í dag þar sem mótherjar þeirra í Njarðvík tóku á móti þeim á Rafholtsvellinum í Njarðvík.

Njarðvíkingar tóku forystuna tvívegis í leiknum en í bæði skiptin tókst Þór að jafna og þar við sat.


Lestu um leikinn: Njarðvík 2 -  2 Þór

„Fyrstu viðbrögð frekar jákvæðar. Við byrjuðum þennan leik nátturlega alveg hrikalega illa og fyrstu 5 mínúturnar þá fáum við á okkur mark og vorum með vindinn í andlitið og vorum bara í svolítin tíma bara að ná tökum á leiknum en svo fannst mér viðbrögðin bara mjög góð og við fengum urmul af færum í leiknum til þess að skora fullt af mörkum og í heildina sáttur við frammistöðuna." Sagði Þorlákur Már Árnason þjálfari Þórs eftir leikinn í dag.

„Ég held að þetta sé líka pínu þetta andlega að við erum búnir að vinna alla heimaleikina og tapa öllum útileikjum og það hefur alveg áhrif þó að menn viðurkenna það ekki þannig ég var gríðarlega sáttur við það hvernig við brugðumst við þó að mér fannst að við ættum að vinna þennan leik að þá voru Njarðvíkingarnir mjög hættulegir hérna í skyndisóknunum og þeir hefðu alveg eins getað stolið þessu."

Þetta var fyrsta jafntefli Þórsara í sumar og í staðin fyrir að horfa á þetta sem tvö töpuð stig vildi Láki horfa í björtu hliðina og sjá þetta sem unnið stig.

„Ég segi bara unnið stig. Við erum í góðri stöðu í deildinni, við erum í efri hlutanum þar sem við viljum vera og eigum leikmenn sem eru búnir að vera meiddir sem eru að koma inn í þetta á næstu dögum." 

Alexander Már Þorláksson, sonur Láka klúðraði vítaspyrnu í leiknum og grínaðist Láki með að þurfa endurskoða hvernig hann ætli að stilla þessu upp í bræðraslagnum í næstu umferð þegar þeir mæta ÍA en þar spilar tvíburabróðirinn Indriði Áki Þorláksson.

„Já ef Alli kemst í liðið, hann brenndi af víti í dag nátturlega þannig það er einhver endurskoðun sem fer fram núna."

Nánar er rætt við Þorlák Már Árnason þjálfara Þórs í spilaranum hér fyrir ofan.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner