Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ansu Fati til Mónakó: „Here we go!"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano er svo gott sem búinn að staðfesta félagaskipti Ansu Fati frá Barcelona til AS Mónakó með því að setja „here we go!" stimpilinn sinn á skiptin.

Fati fer til Mónakó á lánssamningi með kaupmöguleika en hann hefur átt gríðarlega erfitt uppdráttar hjá Barcelona á undanförnum árum.

Fati þótti eitt mesta efni fótboltaheimsins þegar hann braust fram í sviðsljósið fyrir meira en fimm árum síðan, en slæm meiðslavandræði settu strik í reikninginn.

Fati hefur verið nánast stöðugt meiddur síðustu ár og ekki tekist að finna taktinn, hvorki með Barcelona né á láni hjá Brighton þar sem hann kom við sögu í 27 leikjum tímabilið 2023-24.

Hann skiptir því yfir til Mónakó og fær að reyna fyrir sér í franska boltanum. Fati spilaði 10 A-landsleiki fyrir Spán á árunum 2020 til 2023 og er markmiðið hans að komast aftur í landsliðshópinn.

Talið er að Mónakó borgi um fjórar milljónir evra til að fá Fati á láni. Félagið getur svo keypt hann fyrir ellefu milljónir til viðbótar.

Barcelona er sagt hafa endurkaupsrétt á leikmanninum fyrir 28 milljónir evra.
Athugasemdir
banner