Spænski kantmaðurinn Nico Williams er gríðarlega eftirsóttur þessa dagana þar sem stórveldin Barcelona og FC Bayern eru á höttunum eftir honum ásamt Arsenal.
Williams er öflugur kantmaður sem er uppalinn hjá Athletic Bilbao og er með tvö ár eftir af samningi sínum við félagið. Hann vill þó skipta til stærra félags í tilraun til að sigra stærstu titlana sem eru í boði í fótboltaheiminum.
Williams, sem verður 23 ára í júlí, vill skipta til Barcelona þar sem hann myndi verða liðsfélagi Lamine Yamal, en þeir leika saman í spænska landsliðinu. Samkeppnin um byrjunarliðssæti verður þó erfið þar sem Raphinha er einnig samningsbundinn Börsungum.
Barca hefur verið í viðræðum við Athletic um kaupverð í júní en þeim miðar ekki áfram. Williams er með 58 milljón evru söluákvæði í samningi sínum sem FC Bayern og Arsenal eru tilbúin til að borga, en leikmaðurinn vill flytja til Barcelona.
Börsungar eru tilbúnir til að borga þessar 58 milljónir evra en þeir vilja fá að dreifa greiðslunum. Það er Athletic ekki tilbúið til að samþykkja. Leikmanninn þarf að staðgreiða.
Williams er búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir samningi hjá Barcelona sem gildir til 2021. Það er þó ekki víst að félögin komist að samkomulagi um kaupverð nema að Börsungum takist að selja leikmenn á næstu vikum.
Athugasemdir