Ítalska félagið AC Milan er í viðræðum við Club Brugge frá Belgíu um kaup á miðjumanninum Ardon Jashari.
Milan hefur sent inn kauptilboð sem nemur 30 milljónum evra en belgíska félagið vill frá meira fyrir leikmanninn sinn.
Jashari vakti mikla athygli á sér í leik Club Brugge gegn Aston Villa í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð og eru ýmis félög áhugasöm um að tryggja sér þjónustu hans.
Verðmiðinn á Jashari var 30 milljónir evra í vor en hefur hækkað vegna mikils áhuga frá félaga víðsvegar um Evrópu, meðal annars úr ensku úrvalsdeildinni.
Jashari, sem verður 23 ára í júlí, er með fjögur ár eftir af samningi sínum við Club Brugge sem ætlar ekki að selja hann með neinum afslætti.
Jashari er varnarsinnaður miðjumaður en kom þó að 10 mörkum í 52 leikjum með Club Brugge á tímabilinu. Hann er með tvo A-landsleiki að baki fyrir Sviss.
Jashari átti einnig flottan leik gegn Manchester City í deildakeppni Meistaradeildarinnar í janúar og var í lykilhlutverki þegar Brugge sló Atalanta úr leik í febrúar.
Athugasemdir