Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 20:14
Ívan Guðjón Baldursson
Fótbolti.net bikarinn: Tindastóll í 16-liða úrlit
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Tindastóll 2 - 0 Árborg
1-0 Svetislav Milosevic ('18)
2-0 Kolbeinn Tumi Sveinsson ('77)

Lestu um leikinn: Tindastóll 2 -  0 Árborg

Fótbolti.net bikarkeppni neðrideildaliða fór af stað með skemmtilegri viðureign á Sauðárkróki þegar Tindastóll tók á móti Árborg.

Sauðkrækingar voru sterkari aðilinn á heimavelli en gestirnir frá Selfossi létu finna fyrir sér í hörðum slag sem einkenndist af mikilli baráttu.

Heimamenn tóku þó forystuna í fyrri hálfleik þegar Svetislav Milosevic skoraði eftir góða hápressu.

Þegar tók að líða á fyrri hálfleikinn gerðu gestirnir í liði Árborgar sig líklega til að jafna en Nikola Stoisavljevic stóð vaktina vel á milli stanga Tindastóls.

Stólarnir voru sterkari aðilinn í upphafi síðari hálfleiks en Selfyssingar tóku svo völdin í kaflaskiptum leik. Bæði lið fengu góð færi til að skora þar til heimamenn tvöfölduðu forystuna á 77. mínútu, skömmu eftir að Árborg hafði bjargað á marklínu frá Svetislav.

Í þetta sinn skoraði Kolbeinn Tumi Sveinsson furðulegt mark þar sem hann virtist ætla að gefa boltann fyrir markið, en hann endaði í netinu.

Allur kraftur virtist farinn úr Árborg svo lokatölur urðu 2-0 fyrir Tindastól sem fer áfram í 16-liða úrslit.
Athugasemdir