Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gittens staðráðinn í að velja Chelsea
Mynd: EPA
Kantmaðurinn efnilegi Jamie Bynoe-Gittens er staðráðinn í því að fara til Chelsea þrátt fyrir áhuga frá FC Bayern.

Leikmaðurinn er búinn að samþykkja samning frá Chelsea en enska stórveldið á eftir að ná samkomulagi við Borussia Dortmund um kaupverð.

Bayern er sagt vera reiðubúið til að greiða umbeðið kaupverð, en Gittens vill fara til Chelsea.

Dortmund vill 50 milljónir punda fyrir Gittens og er Chelsea talið verið að undirbúa 45 milljón punda tilboð í leikmanninn þessa stundina.

Gittens er vinstri kantmaður að upplagi sem verður 21 árs í ágúst. Hann kom að 17 mörkum í 49 leikjum á nýliðnu tímabili með Dortmund.
Athugasemdir