Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
banner
   fös 25. febrúar 2022 23:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skilur Brentford vel: Klopp sagði að Raya ætti að vera númer tíu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
David Raya er 26 ára gamall og hefur verið aðalmarkvörður Brentford frá því hann kom til félagsins árið 2019 þegar hann kom frá Blackburn.

Landsliðsmarkvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson hefur verið opinn með það að hann hafi horft í það undanfarin ár að hann þurfi að vera tilbúinn þegar kæmi að þeim tímapunkti að Raya færi frá Brentford. Patrik var í síðasta mánuði seldur frá Brentford til Viking.

Patrik: Verð að vera klár þegar David verður seldur (20. nóv '20)

Patrik ræddi við fótbolta.net um skiptin til Viking og var spurður sérstaklega út í David Raya.

„Það hefði mögulega orðið þannig að ég myndi sitja á bekknum hjá Brentford næsta eina og hálfa árið því þeir hjá félaginu eru mjög tryggir aðalmarkverðinum David Raya og voru heiðarlegir með það að þeir ætla reyna bjóða honum nýjan langtímasamning, vilja halda honum sem lengst. Þeir vildu halda áfram að sjá mig vera inn á vellinum og spila leiki," sagði Patrik í fyrsta hluta viðtalsins.

David geggjaður markvörður - Brentford fylgist áfram með
Skiluru alveg ákvörðun Brentford að halda traustinu við Raya?

„Já, fullkomlega. David er geggjaður markvörður og áður en hann meiddist þá var hann topp fimm markvörður í úrvalsdeildinni. Hann var að spila ótrúlega vel og hann sjálfur sagði að hann væri í besta formi lífsins. Svo meiðist hann og þau meiðsli komu á óheppilegum tíma."

„Hann er að koma til baka núna, fyrir hann er bara einn vegur áfram og það er upp á við. Ég skil Brentford mjög vel, hann er með mikla reynslu, er fæddur árið 1995 og er ennþá stór söluvara fyrir félagið. Það er gott að félagið sé heiðarlegt með það að hleypa mér í burtu til að spila nóg af leikjum næstu tvö árin eða svo og svo sjá til hvað gerist."


Klopp hrósaði David í hástert
David Raya er markvörður sem er kannski ekki í liði sem vinnur alla leiki og fær mikið af skotum á sig. Þú nefnir að hann hafi verið topp fimm markvörður í deildinni fyrir meiðslin. Hvað er það sem hann er að gera svona vel og kannski hinn almenni áhugamaður sér ekki?

„Það er kannski ekki mikið talað um það á Íslandi en það hefur verið rætt talsvert á Englandi að hann er virkilega góður í löppunum. Klopp sagði í viðtali eftir fyrri leikinn á móti Brentford að Raya ætti að vera með númer tíu aftan á bakinu. Það er hans styrkleiki númer eitt og gefur liðinu mikið með því."

„Svo er hann líka góður „shot-stopper", les leikinn vel og er virkilega góður að reikna sjá fyrir aðstæður þegar kemur að stungusendingum og svoleiðis. Hann er með mjög háa upphafsstöðu og þannig vill Brentford spila. Hann hefur fengið mörk á sig af því hann er of framarlega en félagið samþykkir það og menn sjá að þeir fá miklu meira út úr því að hann spili þarna heldur en ef hann væri aftar á vellinum. Sendingargetan hans er alveg sturluð og hvernig hann les leikinn eru hans tveir helstu kostir að mínu mati."


Man City tæki frekar David Raya
Patrik hefur verið Manchester United stuðningsmaður síðan hann var ungur pjakkur eins og hann orðaði það sjálfur. Fréttaritari spurði hann hvor væri betri: David Raya eða David de Gea.

„Þetta er spurning," sagði Patrik og hló. „Öll tölfræði og slíkt segir de Gea, hann er búinn að spila fleiri hundruð leiki í úrvalsdeildinni og er inn í spænska landsliðinu en ekki Raya. Sem nútímamarkvörður, ef við miðum við leikstíl Manchester City t.d. þá myndi ég segja að Raya henti City betur en de Gea. De Gea er stærri prófíll, það er engin spurning," sagði Patrik.

Fyrsti og annar hluti viðtalsins:
Sagði mér hversu mikið félagið vildi fá mig
Patrik: Staðan í landsliðinu bæði mjög opin og skýr
Slapp
Athugasemdir
banner