Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   mið 25. mars 2026 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrrum Liverpool maðurinn í vandræðum
Albert Riera.
Albert Riera.
Mynd: EPA
Samkvæmt heimildum Sky er vaxandi óánægja innan herbúða þýska félagsins Eintracht Frankfurt með spænska þjálfarann Albert Riera sem var ráðinn til félagsins fyrr á tímabilinu.

Riera hefur vissulega náð að þétta varnarleik liðsins en á móti hefur sóknarleikurinn dalað töluvert.

Nýjustu úrslit liðsins hjálpa honum ekki. Tap gegn Mainz og markalaust jafntefli gegn St. Pauli hafa aukið á áhyggjurnar, en jafnvel gegn botnliði Heidenheim tókst liðinu aðeins að skora eitt mark.

Ef úrslitin og frammistaðan batnar ekki fljótlega gæti staða hans verið í verulegri hættu, þrátt fyrir að hann hafi aðeins verið í starfi í rúman mánuð.

Riera, sem er 43 ára, spilaði með Liverpool frá 2008 til 2010 en hann þjálfaði Celje í Slóveníu áður en hann tók við Frankfurt.
Slapp
banner