Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
banner
   þri 24. mars 2026 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fengu engan bónus frá félaginu
Rob Green lyftir bikarnum eftir sigur í Evrópudeildinni.
Rob Green lyftir bikarnum eftir sigur í Evrópudeildinni.
Mynd: EPA
Fyrrum markvörður Chelsea, Rob Green, segir að leikmenn liðsins hafi ekki fengið neinar bónusgreiðslur fyrir að vinna Evrópudeildina árið 2019.

Chelsea vann þá Arsenal 4-1 í úrslitaleiknum í Bakú, en samkvæmt Green var enginn bónus í boði fyrir sigurinn.

Green sagði frá þessu í hlaðvarpi Ben Foster. „Við fengum ekki neitt."

Hann kvaðst hafa spurt út í málið og fengið skýringar. „Það var litið á þetta sem annars flokks keppni," sagði hann um viðhorf félagsins til Evrópudeildarinnar.

Green var á þessum tíma þriðji markvörður liðsins og lék ekki leik á tímabilinu, sem reyndist hans eina hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner