Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   þri 24. mars 2026 21:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mjólkurbikarinn: Tók skóna fram og skoraði tvö mörk
Reynir skoraði tvennu fyrir Létti.
Reynir skoraði tvennu fyrir Létti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Léttir 7 - 3 Stokkseyri
1-0 Ari Viðarsson ('16 )
1-1 Hafþór Berg Ríkarðsson ('20 )
2-1 Reynir Haraldsson ('33 )
3-1 Ari Viðarsson ('39 )
4-1 Kristján Jóhannesson ('45 )
5-1 Jónatan Hróbjartsson ('67 )
6-1 Kristján Jóhannesson ('79 )
6-2 Marteinn Maríus Marinósson ('83 )
7-2 Reynir Haraldsson ('85 )
7-3 Sindri Þór Arnarson ('88 )

Léttismenn fóru léttleikandi inn í næstu umferð Mjólkurbikars karla með sigri gegn Stokkseyri.

Reynir Haraldsson, sem lagði skóna á hilluna eftir síðasta sumar, sneri aftur á fótboltavöllinn í kvöld og skoraði tvennu. Hann spilaði með Fjölni og ÍR síðasta sumar.

Það var fjör í leiknum og voru tíu mörk skoruð en Léttismenn komust í 6-1 og því var þetta nú frekar sannfærandi sigur.
Athugasemdir
banner
banner