Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   þri 24. mars 2026 21:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikar kvenna: Fjölnir í kjörstöðu eftir endurkomu
Kvenaboltinn
Fjölnir fór með sigur af hólmi.
Fjölnir fór með sigur af hólmi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KÞ 3 - 4 Fjölnir
0-1 Oliwia Bucko ('21 )
1-1 Þóra Guðrún Einarsdóttir Briem ('28 )
2-1 Þórey Hanna Sigurðardóttir ('53 )
3-1 Una Sóley Gísladóttir ('60 )
3-2 Aníta Björg Sölvadóttir ('78 )
3-3 Oliwia Bucko ('84 )
3-4 Kristín Gyða Davíðsdóttir ('87 )

Fjölnir vann endurkomusigur gegn KÞ í C-deild Lengjubikars kvenna í kvöld.

Fyrsti leikur Fjölnis í Lengjubikarnum endaði með 4-4 jafntefli gegn Fylki og það var ekki minna fjör í Egilshöll í kvöld þegar KÞ var andstæðingurinn.

Oliwia Bucko kom Fjölni yfir snemma en eftir klukkutíma leik var staðan orðin 3-1 fyrir KÞ. Fjölnir gafst hins vegar ekki upp og kom til baka á síðasta stundarfjórðungi leiksins. Oliwia Bucko jafnaði á 84. mínútu og þremur mínútum síðar gerði Kristín Gyða Davíðsdóttir sigurmarkið.

Fjölnir er með fjögur stig eftir tvo leiki og er í kjörstöðu með að komast í undanúrslit. Þær eru með stigi meira en Völsungur þegar liðin mætast í lokaleik riðilsins um næstu helgi. KÞ tapaði öllum þremur leikjum sínum í riðlinum.
Athugasemdir
banner
banner