Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
   þri 24. mars 2026 16:30
Kári Snorrason
Svona er ný varatreyja landsliðsins
Eimskip
Mynd: KSÍ
KSÍ og Puma hafa kynnt nýja varatreyju íslenska landsliðsins. Treyjan er grá að lit með hvítu þrumumynstri. Undir handakrikum er appelsínugulur litur.

Búningurinn er í svipuðum stíl og síðasta varatreyja liðsins, sem var jafnframt grá og með appelsínugulum áherslum.

Fyrr í vetur kynnti landsliðið nýja aðaltreyju sem fékk misgóða dóma.

Puma og KSÍ hafa verið í samstarfi síðan árið 2020 og árið 2024 var skrifað undir samning til 2030.

Íslenska landsliðið er að koma saman í Kanada þar sem liðið mætir Kanada (28. mars) og Haítí (31. mars) í vináttuleikjum. Báðir leikirnir fara fram í Toronto.

Athugasemdir
banner