Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 11:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Samkomulag um að litið verði framhjá ákvæði í samningi Casemiro
Mynd: EPA
Manchester United og Casemiro hafa gert samkomulag um að litið verði framhjá í samningi brasilíska miðjumannsins. Casemiro mun yfirgefa United í sumar eftir fjögur ár hjá tímabilinu.

Casemiro er fastamaður í byrjunarliðinu og stuðningsmenn United hafa kallað eftir því að endursamið verði við hann.

Í samningi leikmannsins er framlengingarákvæði. Samkvæmt ManchesterEveningNews er ákvæði í samningnum sem segir að ef Casemiro byrjar 35 eða fleiri úrvalsdeildarleiki á tímabilinu þá muni samningurinn framlengjast.

Samkvæmt heimildum fjölmiðilsins þá náðu Casemiro og United samkomulagi um það í janúar að litið yrði framhjá þessu ákvæði þegar tekin var ákvörðun um að Casemiro færi frá félaginu í sumar. Félagið þarf því ekki að stíga inn í á lokakaflanum og koma í veg fyrir að Casemiro byrji einn af lokaleikjunum.

Ef Casemiro byrjar alla leiki United sem eftir er af tímabilinu nær hann 35 byrjunarliðsleikjum á tímabilinu. Hann hefur byrjað síðustu fjórtán leiki liðsins og sjö leikir eru eftir af tímabilinu.

Casemiro óskaði eftir því í janúar að tilkynnt yrði að hann væri á förum í sumar.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner