Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   þri 24. mars 2026 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óvænt landsliðsval - Aflýsti fjölskyldufríi þegar kallið kom
Jason Steele.
Jason Steele.
Mynd: EPA
Markvörðurinn Jason Steele hjá Brighton fékk vægast sagt óvænt kall í enska landsliðið í síðustu viku og þurfti í kjölfarið að aflýsa fjölskyldufríi.

Steele, sem er 35 ára, er í fyrsta sinn í A-landsliðshópi Englands og viðurkennir að þetta hafi komið sér á óvart. Hann var búinn að gera aðrar ráðstafanir fyrir landsliðsgluggann.

„Var ég með bókað frí? Já, kannski…" sagði Steele eftir að hann kom til móts við enska landsliðshópinn.

Hann segir þó að það hafi aldrei verið spurning hvað hann myndi gera.

„Engir peningar í heiminum hefðu getað stoppað mig í að fara í landsliðsverkefnið,“ bætti hann við.

Steele er ekki talinn líklegur til að spila stórt hlutverk, en gæti verið hluti af hópnum sem svokallaður æfingamarkvörður fyrir HM í sumar. Þetta er stór stund fyrir Steele sem hefur aldrei áður verið í A-landsliðshópi Englands og segist hann vera að upplifa æskudraum sinn.
Slapp
banner
banner