Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   mið 25. mars 2026 10:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skoðuðu rangt hné á Mbappe
Mynd: EPA
Kylian Mbappe er enn að vinna sig í toppstand eftir að hafa glímt við hnémeiðsli í vetur. Hann var frá vellinum í um mánuð og spilaði síðast 90 mínútna leik fyrir rúmu mánuði síðan.

Mbappe fann fyrir eymslum í vinstra hné snemma í desember. Læknar Real skoðuðu hægra hnéð og eðlilega fannst ekkert. Miðlar eins og RMC, Athletic og Mirror segja frá.

Mbappe fann ennþá fyrir eymslunum og spilaði því ekkert gegn Manchester City í deildarkeppni Meistaradeildarinnar og kom inn af bekknum gegn Barcelona í spænska Ofurbikarnum.

Hann missti af fimm leikjum í kjölfarið á meðan hann jafnaði sig á meiðslunum. Mbappe fór til Parísar þar sem læknar greindu vandamálið og þurfti Mbappe að hvíla og vinna í meiðslunum.

„Það var mikill pirringur, mikil reiði og svo kvíði á einum tímapunkti. Ég var kominn á þann stað að ég vissi ekki hvað væri að hrjá mig. Sá kafli var ekki frábær hjá mér, ég var ekki ánægðasti leikmaður í heimi. En ég er ánægður núna af því þetta er að baki. Þetta er allt farið," sagði Mbappe á mánudag.
Slapp
banner