Þessa dagana er mikið rætt og ritað um framtíð Pep Guardiola hjá Manchester City. Raddirnar eru að verða háværari um að þetta verði hans síðasta tímabil hjá félaginu.
Richard Dunne, fyrrum fyrirliði Man City, ræddi við Goal um Guardiola og mögulega arftaka hans. Hann nefndi í því viðtali einn aðila sem hann væri helst til í að sjá taka við liðinu.
Richard Dunne, fyrrum fyrirliði Man City, ræddi við Goal um Guardiola og mögulega arftaka hans. Hann nefndi í því viðtali einn aðila sem hann væri helst til í að sjá taka við liðinu.
„Fyrir mér er Luis Enrique líklega sá sem hefur skýrasta leikstílinn, þú veist nákvæmlega hvað þú færð frá honum. Hann hefur líka yfirleitt náð árangri hvar sem hann hefur farið," sagði Dunne.
„Ef allt gengur upp og hlutirnir falla rétt saman, þá væri hann besti mögulegi arftakinn. Ég yrði mjög hissa ef önnur félög væru ekki að reyna af fullum krafti að fá hann í sumar áður en hann verður mögulega laus fyrir City."
Enrique er samningsbundinn Paris Saint-Germain en hann er mögulega á förum þaðan í sumar.
Dunne nefndi það jafnframt að hann væri til í að sjá Vincent Kompany snúa aftur til City á einhverjum tímapunkti. Kompany er í dag stjóri Bayern München í Þýskalandi.
Athugasemdir


