„Yfirvofandi brottför Mohamed Salah frá Liverpool markar ekki bara endalok á sérstöku tímabili fyrir félagið. Missir Liverpool er missir ensks fótbolta. Af öllum þeim erlendu sóknarmönnum sem hafa skarað fram úr á Englandi er það aðeins Thierry Henry sem stendur framar en Salah."
„Þó að margir muni færa rök fyrir kostum eins og Cristiano Ronaldo, Eden Hazard, Gianfranco Zola, Dennis Bergkamp eða Eric Cantona, þá hefur enginn þeirra sýnt jafn ógnvænlegar tölur og stöðugt, tímabil eftir tímabil, og Egyptinn. Salah er sjálfkrafa valinn í framlínuna í úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar við hlið Henry og Ronaldo."
Þetta skrifar Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, um Mo Salah í Telegraph. Salah tilkynnti í gær að hann myndi yfirgefa Liverpool í sumar. Hann kom til félagsins árið 2017 og fer í sögubækurnar hjá Liverpool sem einn allra besti leikmaður í sögu félagsins.

Salah er fjórði markahæsti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar, einungis Englendingarnir Alan Shearer, Harry Kane og Wayne Rooney hafa skorað fleiri mörk. Salah yfirgefur Liverpool sem þriðji markahæsti leikmaður í sögu félagsins á eftir Ian Rush og Roger Hunt.
jurgen Klopp keypti Salah frá Roma og segir Carragher að þáttur Salah í velgengni Klopp megi ekki gleymast.
„Alltaf þegar minnst verður á tímann hjá Klopp verður Salah alltaf samheiti yfir velgengnina sem skilaði bæði sigri í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni." Carragher segir að ef Klopp hafi verið leikstjórinn þá hafi Salah verið aðalleikarinn.
„Undir handleiðslu Klopp, og að miklu leyti þökk sé snilligáfu Salah, þróaðist Liverpool hratt úr því að vera félag sem átti í erfiðleikum með að komast í Meistaradeildina í það að vera félag sem trúði því sannarlega að það hefði getu til að vinna keppnina í hvert einasta skipti sem það tók þátt."
Salah er þekktur fyrir það að vera eiginlega alltaf heill, nánast aldrei meiddur.
„Fyrir utan markaskorun hans og hraða er annar, vanmetnari eiginleiki sem verður alltaf að hafa í huga þegar rætt er um réttmætan sess Salah meðal þeirra bestu. Það er sú staðreynd að hann er alltaf til taks.. Á níu tímabilum á hæsta stigi hefur Salah spilað 435 leiki - að meðaltali rétt rúmlega 48 leiki á hverju einasta ári fyrir félagið sitt. Þetta eru ótrúlegar tölur miðað við óþreytandi líkamlega og andlega álag sem hann og lið hans hafa verið í stærstan hluta þess tíma."
„Ekkert heillar mig meira í knattspyrnunni en heimsklassa knattspyrnumenn sem hafa þá löngun að missa aldrei af leik," skrifaði Carragher.
Athugasemdir