Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fös 15. maí 2026 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Benoný mætir Bolton á Wembley
Mynd: Stockport
Það er orðið ljóst að Stockport og Bolton mætast í úrslitum um sæti í Championship deildinni á Wembley þann 24. maí.

Benoný Breki Andrésson er leikmaður Stockport en hann hefur verið mjög óheppinn með meiðsli á tímabilinu. Hann kom til baka í tæka tíð og kom við sögu undir lokin og skoraði í lokaumferð deildarinnar.

Hann kom við sögu undir lokin í báðum leikjunum gegn Stevenage í undanúrslitum umspilsins sem Stockport vann 3-0 samanlagt.

Liðið mætir Bolton sem lagði Bradford af velli 1-0 í gær og samanlagt 2-0. Þetta er í annað sinn á þremur árum sem Bolton fer í úrslit umspilsins.
Slapp
banner
banner
banner