Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   fös 15. maí 2026 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Segir að það eigi að refsa Maddison fyrir færslu á Instagram
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Keith Hackett, fyrrrum FIFA dómari og yfirmaður dómarasamtakanna á Englandi, segir að það eigi að refsa James Maddison fyrir ummæli sem hann lét falla eftir jafntefli Tottenham gegn Leeds í vikunni.

Tottenham gat náð fjögurra stiga forystu á West Ham í fallbaráttunni með sigri en Dominic Calvert-Lewin bjargaði stigi fyrir Leeds með marki úr vítaspyrnu.

Mathys Tel kom Tottenham yfir en gerðist brotlegur inn í vítateignum og Calvert-Lewin skoraði úr vítinu. Maddison kom inn á 85. mínútu og féll í teignum eftir viðskipti sín við Lukas Nmecha, en Jarred Gillett, dómari leiksins, dæmdi ekkert.

„Svona til að hafa hlutina á hreinu. Þessi litla snerting á boltanum sem breytti stefnu hans kom utan á hægri fæti mínum, ekki frá Nmecha og það er nákvæmlega það sem ég sagði dómaranum, en skoðun VAR varði í tuttugu sekúndur. Dómarar eru dauðhræddir við að taka ákvarðanir á vellinum út af VAR. Við höldum samt áfram að berjast. Koma svo, Spurs,“ sagði Maddison á Instagram.

„Þessi færsla verður skoðuð af agadeild enska knattspyrnusambandsins, sem mun ákvarða hvort hún veki efasemdir um heiðarleika dómarans. Ef þeir ákveða að svo sé, verður hann látinn vita og beðinn um athugasemdir, sem getur síðan leitt til ákæru og ef hann er fundinn sekur getur það leitt til sektar eða leikbanns," sagði Hackett við Football Insider

„Að mínu mati vekur þetta efasemdir um heiðarleika dómarans og hann ætti að vera ákærður, en fylgist með.“
Slapp
banner
banner