Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
banner
   fös 15. maí 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
PSG sýnir miðjumanni West Ham áhuga
Mynd: EPA
PSG hefur áhuga á að fá Mateus Fernandes, miðjumann West Ham, til liðs við sig. The Athletic greinir frá þessu.

Þessi 21 árs gamli Portúgali gekk til liðs við West Ham frá Southampton síðasta sumar. Hnn hefur skorað fimm mörk og lagt upp fjögur í 40 leikjum á þessu tímabili.

Sky Sports greindi frá því í vikunni að Man Utd hafi mikinn áhuga á að næla í hann.

Fernandes skrifaði undir fimm ára samning við West Ham með möguleika á framlengingu um eitt ár til viðbótar. Það er ekkert riftunarákvæði í samningnum.
Slapp
banner
banner