Stólpagrín hefur verið gert að svissneska kvennalandsliðinu sem er nú að búa sig undir Evrópumótið. Liðið tapaði 1-7 í æfingaleik sem leikinn var fyrir luktum dyrum gegn U15 ára liði drengja hjá FC Luzern.
Sviss er gestgjafi á EM og verður með Íslandi í riðli á mótinu. Liðin munu eigast við í annarri umferð riðilsins.
Sviss er gestgjafi á EM og verður með Íslandi í riðli á mótinu. Liðin munu eigast við í annarri umferð riðilsins.
Sviss hefur búið sig undir mótið með því að spila gegn táningsdrengjum. Liðið hafði tapað naumlega 2-1 gegn U15 liði FC Solothurn áður en kom að skellinum gegn Luzern.
Það átti ekki að gera úrslit leiksins opinber en þau láku hinsvegar út á TikTok og fengu í kjölfarið mikla umfjöllun fjölmiðla.
Séu í raun tvær ólíkar íþróttagreinar
„Það er ekkert nýtt að kvennalið taki æfingaleiki gegn unglingaliðum. Markmiðið er að láta reyna á líkamlega þáttinn og fá hraða og líkamlega baráttu," segir talsmaður svissneska sambandsins við fjölmiðla þar í landi.
Íþróttafréttamaðurinn Christian Finkbeiner hjá Blick segir að þessi 1-7 skellur segi ekkert til um það hvernig svissneska liðinu muni vegna á Evrópumótinu.
„Þessi úrslit hafa enga merkingu og gefa engar vísbendingar um hvernig mun ganga á EM. Kvennafótbolti og karlafótbolti eru í raun tvær ólíkar íþróttagreinar," segir Finkbeiner í grein sinni og segir ekki samanburðarhæft að bera saman fótboltann þegar kemur að hraða og styrk.
Auk Sviss er Ísland með Finnlandi og Noregi í riðli á EM. Fyrsti leikur Íslands er gegn Finnum eftir viku.
The Switzerland women’s national team (ranked 23rd in the world) lost 7-1 in a friendly match against Luzern’s U15 boys team.
— EPL Bible (@EPLBible) June 25, 2025
Wow. ?????????????? pic.twitter.com/Czs3xpgV2b
Athugasemdir