
Cardoso mun berjast við Pablo Barrios, Conor Gallagher og Rodrigo De Paul um sæti í byrjunarliði Diego Simeone.
Atlético Madrid er búið að ná munnlegu samkomulagi við Johnny Cardoso leikmann Real Betis um kaup og kjör, en spænska stórveldið þarf að greiða rúmlega 30 milljónir evra til að kaupa leikmanninn.
Cardoso er 23 ára varnartengiliður með fimm ár eftir af samningi við Real Betis, þar sem hann var lykilmaður á síðustu leiktíð.
Betis keypti hann úr röðum Internacional í Brasilíu fyrir einu og hálfu ári síðan og hefur leikmaðurinn verið meðal bestu leikmanna liðsins síðustu mánuði.
Hann hefur vakið verðskuldaða athygli á sér og er orðinn fastamaður í bandaríska landsliðinu.
Fabrizio Romano segir frá þessu og talar um að Atlético eigi eftir að ná samkomulagi við Betis um kaupverð, sem ætti þó ekki að vera neitt vandamál fyrir félagið.
Búist er við að kaupin verði frágengin á næstu dögum.
Athugasemdir