England 2 - 1 Holland
1-0 Harvey Elliott ('62 )
1-1 Noah Ohio ('72 )
2-1 Harvey Elliott ('85 )
1-0 Harvey Elliott ('62 )
1-1 Noah Ohio ('72 )
2-1 Harvey Elliott ('85 )
Liverpool-maðurinn Harvey Elliott skaut enska U21 árs landsliðinu í úrslitaleik Evrópumótsins í Slóvakíu með því að skora bæði mörkin í 2-1 sigri liðsins á Hollandi í dag.
Elliott hefur átt frábært mót með Englendingum og var með tvö mörk fyrir stórleikinn gegn Hollendingum.
Sóknarsinnaði miðjumaðurinn kom Englandi yfir á 62. mínútu með flottu skoti hægra megin úr teignum alveg efst í nærhornið áður en Noah Ohio jafnaði fyrir Hollendinga um það bil tíu mínútum síðar.
Nokkrum mínútum fyrir leikslok átti Elliott stórkostlegan sprett framhjá nokkrum varnarmönnum Hollands áður en hann þrumaði boltanum neðst í hægra hornið.
Mögnuð frammistaða hjá Elliott sem skaut Englendingum í úrslit í annað sinn í röð en hann var einnig í hópnum sem vann mótið fyrir tveimur árum.
Englendingar mæta Frökkum eða Þjóðverjum í úrslitaleiknum sem er spilaður á laugardag.
Athugasemdir