Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lallana í teymið hjá Still
Mynd: EPA
Adam Lallana, sem tilkynnti í morgun að hann væri hættur að spila fótbolta, verður í þjálfarateymi Will Still hjá Southampton.

Lallana lagði skóna á hilluna eftir glæsilegan feril, hann er 37 ára, lék 34 landsleiki fyrir England og vann ensku deildina og Meistaradeildina sem leikmaður Liverpool. Alls lék hann 305 leiki í úrvalsdeildinni á sínum ferli og kom að 67 mörkum.

Paul Trollope, fyrrum stjóri Bristol Rovers, verður aðstoðarþjálfari Southampton, Ruben Martinez verður markmannsþjálfari. Carl Martin verður áfram í þjálfarateymi Southampton.

Simon Rusk sem var bráðabirgðastjóri Southampton fyrir komu Still hefur yfirgefið félagið.
Athugasemdir
banner
banner