Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 12:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mbeumo nálgast Man Utd
Mynd: EPA
Samkvæmt heimildum talkSPORT er Manchester United að nálgast samkomulag við Brentford um kaup á Bryan Mbeumo.

Félögin hafa rætt sín á milli um möguleg félagaskipti. Kaupverðið verður rúmlega 60 milljónir punda og verður það metsala hjá Brentford.

United vill helst klára kaupin fyrir 7. júlí þegar undirbúningstímabilið hefst. Tottenham hefur einnig áhuga á Mbeumo sem átti frábært tímabil með Brentford í vetur. Thomas Frank, sem þjálfaði Mbeumo hjá Brentford, tók við stjórastarfinu fyrr í þessum mánuði.

Kamerúnski sóknarmaðurinn hefur þegar náð samkomulagi við Rauðu djöflanna um kaup og kjör.

Sagt er að þegar United klári kaupin á Mbeumo fari einbeitigin á að finna nýjan framherja fyrir Ruben Amorim.
Athugasemdir
banner