Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 15:11
Elvar Geir Magnússon
Mun spila undir stjórn Inzaghi í Sádi-Arabíu
Theo Hernandez.
Theo Hernandez.
Mynd: EPA
Theo Hernandez er á leið til Parísar þar sem hann mun hitta forráðamenn Sádi-arabíska félagsins Al-Hilal. Franski landsliðsmaðurinn mun skrifa undir samning við félagið.

Hernandez var í viðræðum við AC Milan um nýjan samning en þær viðræður sigldu í strand. Ítalska félagið ákvað því að taka tilboði upp á 30 milljónir evra í þennan 27 ára vinstri bakvörð.

Hernandez ræddi einnig við Atletico Madrid en tilboð spænska félagsins til Milan var ekki eins gott og tilboð Al-Hilal og var því ekki tekið.

Simone Inzaghi var ráðinn sem nýr þjálfari Al-Hilal nokkrum dögum eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar þar hann stýrði Inter en liðið steinlá gegn Paris Saint-Germain.
Athugasemdir
banner
banner