Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 18:22
Brynjar Ingi Erluson
Nörgaard verður leikmaður Arsenal
Mynd: EPA
Danski miðjumaðurinn Christian Nörgaard er að ganga í raðir Arsenal frá Brentford. Fabirizio Romano fullyrðir skiptin með frasanum fræga: „Here we go!“ .

Arsenal lagði fram tæplega 10 milljóna punda tilboð í Nörgaard í gær og eru félögin búin að ná samkomulagi.

Brentford hefur gefið Norgaard, sem er 31 árs gamall, leyfi til að fara í læknisskoðun hjá Arsenal.

Norgaard hefur spilað með Brentford síðustu sex ár og verið alger lykilmaður í uppgangi liðsins, en er nú á förum þrátt fyrir að hafa gert nýjan tveggja ára samning í mars.

Hann kemur inn í stað Thomas Partey sem yfirgefur Arsenal á frjálsri sölu um mánaðamótin.


Athugasemdir
banner