Franski miðjumaðurinn Paul Pogba er að ganga til liðs við Mónakó. Fabrizio Romano staðfestir fregnirnar með færslu á samfélagsmiðlinum X.
Pogba er búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir tveggja ára samningi við AS Mónakó sem leikur í frönsku deildinni. Hann er því samningsbundinn félaginu til 2027.
Pogba er 32 ára gamall og hefur lítið sem ekkert spilað undanfarin ár vegna meiðsla og leikbanns fyrir ólöglega lyfjatöku.
Hann snýr aftur á völlinn með Mónakó í haust ef allt gengur upp. Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskiptin og flýgur Pogba til Mónakó í dag til að gangast undir læknisskoðun og skrifa undir samninginn.
Pogba kemur til Mónakó á frjálsri sölu en hann hefur leikið fyrir Manchester United og Juventus á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta. Hann varð heimsmeistari með franska landsliðinu 2018 og var algjör lykilmaður á þeim tíma.
Athugasemdir