Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo nálægt samkomulagi við Al Nassr
Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo
Mynd: EPA
Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo er að nálgast samkomulag við sádi-arabíska félagið Al Nassr.

Hinn fertugi Ronaldo verður samingslaus um mánaðamótin og hefur hann þegar greint frá því að hann verði áfram hjá Al Nassr.

Sky Sports greinir frá því að viðræður hans við félagið séu á lokametrunum og að hann muni að minnsta kosti gera samning út næsta tímabil.

Ronaldo ætlar að vera í toppformi fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó á næsta ári sem verður hans síðasti séns til að fullkomna ferilskrána.

Það er ekki eina markmið hans en hann stefnir einnig á að rjúfa þúsund marka múrinn.

Portúgalinn hefur skorað 938 mörk á ferlinum og ef miðað er við tölur hans síðustu ár er gert ráð fyrir að hann verði búinn að ná því markmiði seint á næsta ári.
Athugasemdir
banner