Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 19:43
Brynjar Ingi Erluson
Sveinn Aron skoraði af punktinum er Sarpsborg kastaði Rosenborg úr leik
Sveinn Aron heldur áfram að gera flotta hluti í bikarnum
Sveinn Aron heldur áfram að gera flotta hluti í bikarnum
Mynd: Sarpsborg
Sveinn Aron Guðjohnsen hjálpaði sínum mönnum í Sarpsborg að komast áfram í undanúrslit norska bikarsins með því að skora í vítakeppni í sigri á Rosenborg í kvöld.

Framherjinn kom inn af bekknum í uppbótartíma síðari hálfleiks og spilaði alla framlenginguna.

Hann fékk síðan traustið í vítakeppninni og þakkaði fyrir sig með því að skora úr annarri spyrnu Sarpsborg sem endaði á því að vinna vítakeppnina, 4-2.

Ísak Snær Þorvaldsson var á bekknum hjá Rosenborg en kom ekkert við sögu.

Annar Íslendingaslagur var spilaður í bikarnum er Viking vann Álasund, 1-0.

Davíð Snær Jóhannsson og Ólafur Guðmundsson byrjuðu báðir hjá Álasundi á meðan Hilmir Rafn Mikaelsson var ónotaður varamaður hjá Viking.

Viking mætir Sarpsborg í undanúrslitum en Lilleström og Kristiansund mætast í hinum leiknum.
Athugasemdir
banner
banner