
Tvær ungar og bráðefnilegar voru að framlengja samninga sína við Íslandsmeistara Breiðabliks.
Líf Joostdóttir van Bemmel hefur verið í lykihlutverki upp yngri landsliðin. Hún er partur af sterku U19 landsliði Íslands og hefur í heildina spilað 24 leiki fyrir landsliðin, þar á meðal einn fyrir U23 liðið.
Hún skoraði sjö mörk í átta leikjum með Augnablik í 2. deild kvenna í fyrra og hefur verið mikið í kringum aðallið Blika í ár. Hún er komin með tvö mörk í sjö leikjum í Bestu deildinni það sem af er tímabils þrátt fyrir ungan aldur.
Herdís Halla Guðbjartsdóttir er markvörður með sex leiki að baki í efstu deild sem komu allir á milli stanga FH þar sem hún lék á láni í tvö ár. Hún hefur einu sinni varið mark meistaraflokks Blika í keppnisleik, í 4-2 sigri á útivelli gegn FH í Lengjubikarnum í febrúar.
Herdís á 21 landsleik að baki fyrir yngri lið Íslands, þar á meðal einn fyrir U19 liðið.
Þær eru báðar fæddar 2007 og því á átjánda aldursári. Þær eru uppaldar hjá Breiðabliki en ekki er greint frá hversu langa samninga félagið gerði við stúlkurnar.
Athugasemdir