Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   fös 27. febrúar 2026 09:30
Elvar Geir Magnússon
Real Madrid telur sig geta keypt Rodri í sumar
Mynd: EPA
Rodri, miðjumaður Manchester City, hefur verið orðaður við Real Madrid alveg síðan hann vann Ballon d’Or gullboltann.

Á þessu tímabili hefur Rodri verið að koma sér í gang eftir krossbandaslit og lent í ýmsum örðugleikum.

Hann hefur hinsvegar verið að finna taktinn síðan nýtt ár gekk í garð og byrjað sjö af átta síðustu úrvalsdeildarleikjum City. Hann verður í eldlínunni með spænska landsliðinu á HM í sumar.

Blaðamaðurinn Ramon Alvarez de Mon segir að Real Madrid hyggist gera tilboð í Rodri í sumar og telji að það geti fengið miðjumanninn fyrir um 50 milljónir evra.

Í sumar mun þessi 29 ára leikmaður aðeins eiga ár eftir af samningi sínum. Florentino Perez, forseti Real Madrid, hefur ekki farið leynt með aðdáun sína á Rodri.
Athugasemdir
banner