KR 4 - 2 FH
1-0 Aron Sigurðarson ('6 )
1-1 Tómas Orri Róbertsson ('8 )
2-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('18 )
3-1 Amin Cosic ('28 )
4-1 Aron Sigurðarson ('33 )
4-2 Tómas Orri Róbertsson ('43 )
Lestu um leikinn
1-0 Aron Sigurðarson ('6 )
1-1 Tómas Orri Róbertsson ('8 )
2-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('18 )
3-1 Amin Cosic ('28 )
4-1 Aron Sigurðarson ('33 )
4-2 Tómas Orri Róbertsson ('43 )
Lestu um leikinn
Óskar Hrafn Þorvaldsson og KR-ingar eru í draumalandi með fullt hús stiga á toppi Bestu deildar karla eftir að hafa unnið FH, 4-2, í 4. umferð deildarinnar á Meistaravöllum í kvöld.
Mikið flæði hefur verið á KR í byrjun tímabils og mátti sjá á undirbúningstímabilinu hvað væri í vændum hjá þeim.
Aron Sigurðarson, fyrirliði liðsins, var með stórar yfirlýsingar á síðasta tímabili, og sagði ekkert því til fyrirstöðu að KR myndi taka yfir íslenskan fótbolta og sá ætlar að standa við stóru orðin.
Hann kom KR í forystu á 6. mínútu eftir klaufagang í vörn FH-inga þar sem Róbert Hugi Sævarsson ákvað að tvöfalda á Amin Cosic, sem fann Luke Rae og þaðan á Aron sem skoraði örugglega.
Tveimur mínútum síðar svöruðu FH-ingar eftir hornspyrnu. Boltinn datt fyrir Tómas Orra Róbertsson sem setti boltann í netið eftir smá darraðardans.
Á næstu tuttugu mínútum gerðu KR-ingar út um leikinn með þremur mörkum. Eiður Gauti Sæbjörnsson skoraði markið sem Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var ósáttur með. Aron Sig togaði í peysu andstæðingsins, en hagnaðarreglunni beitt áður en FH tapaði boltanum. Aron sendi því næst Eið í gegn sem setti boltann fram hjá Jökli Andréssyni í markinu.
Amin Cosic og Aron bættu við tveimur mörkum á fimm mínútum. Amin fékk stungusendingu frá Gabríel Hrannari Eyjólfsson og setti boltann í netið úr þröngu færi áður en Aron Sig gerði fjórða markið.
Orri Hrafn Kjartansson, sem kom inn fyrir meiddan Arnór Ingva Traustason, átti stoðsendinguna á Aron sem skaut föstu skoti í netið.
FH-ingar minnkuðu muninn með öðru marki Tómasar undir lok fyrri hálfleiks. Baldur Kári Helgason slapp í gegn, sendi boltann á Tómas sem þurfi ekki annað en að renna boltanum í netið.
Staðan í hálfleik 4-2 fyrir KR sem hefði hæglega getað fleiri mörk í síðari hálfleiknum.
Amin fékk tvö dauðafæri til að skora og Stefán Árni Geirsson eitt færi en KR-ingar gátu bara ekki skorað fleiri mörk. Þeir ganga þó sáttir frá þessum leik. Magnaður sóknarleikur og fjórði sigurinn í röð.
KR er með 12 stig á toppnum en FH-ingar með aðeins eitt stig úr fjórum leikjum og áhyggjurnar aukast í Krikanum.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 3 | 3 | 0 | 0 | 14 - 6 | +8 | 9 |
| 2. Fram | 4 | 2 | 1 | 1 | 11 - 6 | +5 | 7 |
| 3. Víkingur R. | 3 | 2 | 1 | 0 | 6 - 3 | +3 | 7 |
| 4. Valur | 3 | 2 | 0 | 1 | 6 - 3 | +3 | 6 |
| 5. Stjarnan | 3 | 2 | 0 | 1 | 8 - 7 | +1 | 6 |
| 6. Þór | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 - 6 | -1 | 6 |
| 7. Breiðablik | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 - 1 | +1 | 5 |
| 8. Keflavík | 4 | 1 | 1 | 2 | 5 - 7 | -2 | 4 |
| 9. ÍA | 3 | 0 | 2 | 1 | 4 - 5 | -1 | 2 |
| 10. KA | 4 | 0 | 1 | 3 | 4 - 8 | -4 | 1 |
| 11. FH | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 7 | -4 | 1 |
| 12. ÍBV | 4 | 0 | 1 | 3 | 5 - 14 | -9 | 1 |



