Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
banner
   sun 17. maí 2026 21:24
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Skoraði tvennu í fyrsta byrjunarliðsleiknum síðan í mars
Raphinha skoraði tvö mörk fyrir Barcelona í kvöld
Raphinha skoraði tvö mörk fyrir Barcelona í kvöld
Mynd: EPA
Barcelona 3 - 1 Betis
1-0 Raphinha ('28 )
2-0 Raphinha ('62 )
2-1 Alarcon Isco ('69 , víti)
3-1 Joao Cancelo ('74 )

Spánarmeistarar Barcelona unnu 3-1 sigur á Real Betis í næst síðustu umferð La Liga á Spáni í kvöld.

Brasilíski sóknarmaðurinn Raphinha var í byrjunarliði Barcelona í fyrsat sinn síðan í mars, en hann hefur verið frá vegna meiðsla síðustu tvo mánuði.

Hann lék síðasta hálftímann í 2-0 sigrinum á Real Madrid fyrir viku og var þá í banni vegna uppsafnaðra gulra spjalda í síðasta leik.

Raphinha fékk því loks tækifærið til að byrja í kvöld og þakkaði traustið með tveimur mörkum. Fyrra markið gerði hann beint úr aukaspyrnu á 28. mínútu. Markvörðurinn giskaði á að hann myndi skjóta í nærhornið, en giskaði á rangt horn.

Annað markið kom eftir hræðilega sendingu Betis-manna til baka. Raphinha komst inn í sendinguna og setti hann örugglega niðri í hægra hornið.

Isco minnkaði muninn úr vítaspyrnu aðeins sjö mínútum síðar áður en Joao Cancelo gulltryggði sigur Börsunga stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Barcelona er með 94 stig á toppnum en Betis í 5. sæti með 57 stig þegar ein umferð er eftir.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner
banner
banner