Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
banner
   sun 17. maí 2026 21:59
Kári Snorrason
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Fagnar marki sínu í dag.
Fagnar marki sínu í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR og Fram gerðu 2-2 jafntefli á Meistaravöllum fyrr í kvöld. Fyrirliði KR, Aron Sigurðarson, skoraði fyrra mark Vesturbæinga en Fótbolti.net ræddi við Aron að leik loknum.

„Leikurinn var svolítið kaflaskiptur. Fram-liðið er stórt og líkamlegt á móti litlu og vel spilandi liði KR. Leikurinn var svolítið þannig. Tvö góð lið að mætast. Auðvitað er leiðinlegt og súrt að fá á sig mark á 90. mínútu. En heilt yfir var það kannski sanngjarnt.“

KR-ingar voru án Arnórs Ingva, Finns Tómasar, Stefáns Árna og Ástbjarnar Þórðarsonar í kvöld. Aron var spurður hvort að það munaði ekki um þessa leikmenn.

„Það gerir það. Auðvitað koma hörkusterkir leikmenn inn en þetta eru fjórir leikmenn sem hafa spilað alla leikina sem detta út. Það væri högg fyrir hvert einasta lið. Frammistaðan var samt heilt yfir góð. Það er ekki hægt að væla yfir því, þetta er bara fótbolti og þetta gerist við öll lið.“


Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner