Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
banner
   sun 17. maí 2026 19:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
Viktor skallar boltann í netið.
Viktor skallar boltann í netið.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Þetta var óþarflega erfitt. Vorum að elta síðustu tuttugu mínúturnar, mikið hlaup og erfitt en þetta hafðist svo maður er glaður," sagði Viktor Jónsson eftir sigur ÍA á Þór í dag.

Lestu um leikinn: Þór 1 -  2 ÍA

Viktor kom ÍA yfir með skallamarki eftir aukaspyrnu frá Guðmundi Þórarinssyni.

„Gummi tekur góða spyrnu á fjærstöngina. Ég næ að búa mér til pláss og vinna boltann og skalla hann í fjær. Mér sýndist hann ná að setja aðeins puttana í þetta en það er erfitt að verja svona þegar maður nær góðum skalla," sagði Viktor.

Viktor var hins vegar svekktur að hafa ekki skorað annað mark þegar Aron Birkir Stefánsson varði vítaspyrnu frá honum.

„Það er svekkjandi að ná ekki að skora en það kemur fyrir á bestu bæjum, stundum klikkar maður á vítum, það er bara eins og það er," sagði Viktor.

Viktor er bjartsýnn á að Skagamenn séu á góðri leið.

„Komnir tveir leikir í röð með bikarnum. Vð höldum áfram með þessum hætti að skapa okkur fullt af góðum færum og stöðum. Við erum að halda þokkalega í boltann og spila flottan leik heilt yfir. Með sigrunum kemur trúin og nú eru tveir í röð, þetta er allt á leiðinni upp á við," sagði Viktor.
Slapp
banner
banner