Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   sun 17. maí 2026 20:23
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: Dramatískar lokamínútur á Hlíðarenda - Framarar fyrstir til að taka stig af KR-ingum
Hólmar Örn gerði sigurmark Vals seint í uppbótartíma
Hólmar Örn gerði sigurmark Vals seint í uppbótartíma
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framarar tóku stig af toppliði KR
Framarar tóku stig af toppliði KR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR er áfram taplaust eftir sjö leiki
KR er áfram taplaust eftir sjö leiki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram varð fyrsta liðið í Bestu deildinni til að taka stig af KR-ingum er liðin skildu jöfn, 2-2, á Meistaravöllum í dag. Valsmenn unnu þá dramatískan 3-2 sigur á Breiðabliki á Hlíðarenda.

Það var mikið fjör í leik Vals og Blika. Anton Ari Einarsson varði frábærlega snemma leiks áður en Bjarni Mark Duffield bjargaði á línu hinum megin á vellinum.

Aron Bjarnason átti skot í stöngina rétt áður en Adam Ægir Pálsson kom Val í forystu. Lúkas Logi Heimisson fékk boltann fyrir utan vítateiginn, kom honum á Adam sem skoraði örugglega.

Blikar byrjuðu síðar hálfleikinn af krafti og með alger yfirráð. Ágúst Orri Þorsteinsson jafnaði á 55. mínútu. Aron Bjarna potaði honum inn fyrir á Ágúst sem skoraði með snyrtilegri afgreiðslu.

Gestirnir héldu sóknarþunganum áfram á Val og þegar tíu mínútur voru eftir skoraði Aron Bjarna með frábæru skoti upp í samskeytin. Algerlega óverjandi fyrir Frederik Schram í markinu.

Valsmenn lögðu ekki árar í bát heldur svöruðu um hæl er Ingimar Torbjörnsson Stöle lyfti boltanum yfir Anton í markinu og seint í uppbótartíma tryggði Hólmar Örn Eyjólfsson sigurinn með marki etir hornspyrnu.

Magnaður sigur Vals sem kemur liðinu upp að hlið Breiðabliks í 5. sætið með 12 stig.

Fram fyrsta liðið til að taka stig af KR

Fram varð í kvöld fyrsta liðið til að taka stig af KR í deildinni, en leiknum lauk með 2-2 jafntefli þar sem Fram gerði dramatískt jöfnunarmark undir lokin.

Framarar veittu KR-ingum alvöru leik og voru líklegri til að byrja með.

Fred Saraiva kom þeim yfir á 41. mínútu er hann fékk að labba óáreittur inn í teiginn áður en hann skoraði með laglegu skoti upp við fjærstöng.

KR-ingar voru ekki lengi að jafna metin. Fyrirliðinn Aron Sigurðarson gerði það. Gabríel Hrannar Eyjólfsson átti fyrirgjöf sem Viktor Sigurðsson kýldi út í teiginn á Aron sem skoraði örugglega.

Þegar sjö mínútur voru eftir af leiknum töldu KR-ingar sig hafa skorað sigurmark er Luke Rae skoraði. Amin Cosic keyrði upp vinstri vænginn, komst framhjá einum og lagði boltann síðan út á Luke Rae sem var einn á auðum sjó og kom KR yfir.

Undir lok venjulegs leiktíma fengu Framarar hornspyrnu. Halldór Snær Georgsson, markvörður KR, reyndi að kýla hana í burtu en hitti ekki boltann sem datt fyrir Sigurjón Rúnarsson sem náði að troða boltanum í vinstra hornið.

Lokatölur á Meistaravöllum, 2-2, og nokkuð sanngjarnt miðað við hvernig leikurinn þróaðist. Fram er fyrsta liðið til að taka stig af KR sem er dottið niður í 2. sæti með 19 stig, jafnmörg og Víkingur sem er með betri markatölu, en Fram er í 3. sæti með 14 stig.

Valur 3 - 2 Breiðablik
1-0 Adam Ægir Pálsson ('17 )
1-1 Ágúst Orri Þorsteinsson ('55 )
1-2 Aron Bjarnason ('80 )
2-2 Ingimar Torbjörnsson Stöle ('84 )
3-2 Hólmar Örn Eyjólfsson ('94 )
Lestu um leikinn

KR 2 - 2 Fram
0-1 Frederico Bello Saraiva ('41 )
1-1 Aron Sigurðarson ('45 )
2-1 Luke Morgan Conrad Rae ('83 )
2-2 Sigurjón Rúnarsson ('90 )
Lestu um leikinn
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 9 1 0 34 - 6 +28 28
2.    KR 10 8 1 1 38 - 23 +15 25
3.    Fram 9 6 2 1 25 - 16 +9 20
4.    Breiðablik 9 4 3 2 22 - 15 +7 15
5.    Valur 10 5 0 5 19 - 22 -3 15
6.    ÍA 9 3 3 3 12 - 16 -4 12
7.    Keflavík 9 3 2 4 12 - 18 -6 11
8.    KA 9 3 1 5 12 - 15 -3 10
9.    Stjarnan 10 3 1 6 18 - 22 -4 10
10.    Þór 9 2 0 7 7 - 23 -16 6
11.    ÍBV 9 1 2 6 14 - 23 -9 5
12.    FH 9 0 2 7 12 - 26 -14 2
Slapp
banner