Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
   sun 17. maí 2026 22:15
Sigurjón Árni Torfason
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Hallgrímur Jónasson
Hallgrímur Jónasson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA vann góðan 2-1 sigur gegn FH á Kaplakrikavelli. KA hafa stigið up pí undanförnum leikjum og hafa nú unnið 3 leiki í röð í deildinn.

Hallgrímur Jónasson var sáttur eftir leik þegar Fótbolti.net ræddi við hann eftir leik.


„Já, gríðarlega ánægður, ánægður með liðið mitt. Við náttúrulega erum að snerta gras í fyrsta skipti í mjög langan tíma. Maður er alltaf svona smá óviss hvernig það gengur. Mér fannst bæði liðin ráða ágætlega við það að spila á grasi. Ég var bara svo ánægður með í rauninni bæði fyrri hálfleikinn og seinni hálfleikinn". sagði brosmildur þjálfari KA eftir leik.

„Mér fannst við vera klókir bæði í fyrri hálfleik og seinni hálfleik. Við komumst aleinir í gegn hérna í lok fyrri hálfleiks sem uppsker rautt spjald og það breytir leikmyndinni auðvitað þegar við löbbum inn í hálfleikinn".

Kristján Snær, leikmaður FH fékk að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleik.

"Leikmyndin náttúrulega breytist. Ég er að breyta þessu. Uppleggið fyrir seinni hálfleikinn, nýkomið rautt spjald og við þurftum svona að finna hvar væru opnanir. Við ræddum það í hálfleik og mér fannst við komast í margar góðar stöður".

"Við töluðum um að fjölga mönnum inn í teig og keyra á þá. Við ætluðu að vinna leikinn þó að við værum búnir að jafna hann. Sem betur fer þá tókst það í lokin". sagði Hallgrímur sáttur að lokum.


Slapp
banner