Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
banner
   sun 17. maí 2026 20:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Keflavík
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar.
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum aldrei sáttir með annað en sigur. Þetta var erfiður leikur," sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 1-1 jafntefli gegn Keflavík í Bestu deildinni í kvöld.

Eftir að hafa byrjað vel er Stjarnan búið að ná í eitt stig í síðustu fimm leikjum sínum. Stigið kom í kvöld í hörkuleik gegn Keflavík.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  1 Stjarnan

„Þetta er mögulega sanngjörn niðurstaða, að bæði lið fái eitthvað úr leiknum. Við hefðum auðvitað viljað meira."

Hefur Jökull miklar áhyggjur af árangri Stjörnunnar upp á síðkastið?

„Það er ekki gott að fá eitt stig í fimm leikjum. Það er aðallega bara svekkjandi. Við erum búnir að vinna okkur inn fyrir meiru en það. Skagaleikurinn var lélegur og þessi var 50/50. Að öðru leyti höfum við spilað vel. Við þurfum að jafna okkur og gera okkur klár í næsta."

Líður þér eins og það sé komin mikil pressa á þig?

„Nei, ekkert þannig. Ég er ekkert að pæla í því. Öll mín orka fer í liðið og inn á völl. Það hjálpar liðinu og leikmönnum. Það er það eina sem ég hef áhyggjur af og eyði tímanum mínum í."

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner