Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   sun 17. maí 2026 20:31
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Orri tók fram úr Eiði Smára
Orri skrifaði sig í sögubækurnar
Orri skrifaði sig í sögubækurnar
Mynd: EPA
Orri Steinn Óskarsson er orðinn markahæsti Íslendingur í sögu La Liga-deildarinnar á Spáni, en hann hirti metið með því að skora í 4-3 tapi Real Sociedad gegn Valencia í 37. umferð deildarinnar í kvöld.

Orri er á öðru tímabili sínu með Sociedad sem hefur einnkennst af erfiðum meiðslum, magnaðri endurkomu og núna er hann farinn að skrifa sig í sögubækurnar.

Landsliðsfyrirliðinn byrjaði hjá Sociedad og hjálpaði liðinu að koma til baka eftir að hafa lent 2-1 undir. Valencia gerði sjálfsmark á 60. mínútu og þremur mínútum síðar kom Orri liðinu yfir með ellefta marki sínu í La Liga.

Hann er þar með kominn fram úr Eiði Smára Guðjohnsen sem skoraði 10 deildarmörk með Barcelona frá 2006 til 2009.

Tap Sociedad þýðir að liðið er í 10. sæti með 45 stig þegar ein umferð er eftir.

Vinicius Junior var hetja Real Madrid í 1-0 sigrinum á Sevilla. Madrídingar eru í öðru sæti með 83 stig, en Sevilla þremur stigum fyrir ofan fallsæti fyrir lokaumferðina.

Úrslit og markaskorarar:

Elche 1 - 0 Getafe
1-0 Victor Chust ('19 )
Rautt spjald: Djene, Getafe ('39)

Levante 2 - 0 Mallorca
1-0 Carlos Espi ('32 )
2-0 Kervin Arriaga ('87 )
2-0 Adrian De La Fuente ('90 , Misnotað víti)
Rautt spjald: ,Brugue, Levante ('85)Johan Mojica, Mallorca ('85)

Osasuna 1 - 2 Espanyol
0-1 Carlos Romero ('27 )
1-1 Victor Munoz ('49 )
1-2 Kike Garcia ('53 )

Sevilla 0 - 1 Real Madrid
0-1 Vinicius Junior ('15 )

Real Sociedad 3 - 4 Valencia
1-0 Aihen Munoz ('3 )
1-1 Javier Guerra Moreno ('8 )
1-2 Hugo Duro ('22 )
2-2 Cesar Tarrega ('60 , sjálfsmark)
3-2 Orri Oskarsson ('63 )
3-3 Guido Rodriguez ('89 )
3-4 Javier Guerra Moreno ('90 )
Rautt spjald: Eray Comert, Valencia ('70)

Rayo Vallecano 2 - 0 Villarreal
1-0 Sergio Camello ('28 )
2-0 Alemao ('47 )

Atletico Madrid 1 - 0 Girona
1-0 Ademola Lookman ('21 )

Oviedo 0 - 1 Alaves
0-1 Toni Martinez ('17 )

Athletic 1 - 1 Celta
0-1 Williot Swedberg ('4 )
1-1 Inaki Williams ('52 )


Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner
banner
banner